Könnun Kraftur og hreyfing bls. 29-43
  • 1. Við byggingu píramídanna notuðu Egyptar
A) hesta
B) vagna með hjólum
C) kringlótta steina
D) einfaldar vélar
  • 2. Kraftur er mældur í
A) kílógrömmum - skammstafað með kg
B) njútonum - skammstafað með N
C) grömmum - skammstafað með g
D) einingunni force - skammstafað með F
  • 3. Núningur
A) er kraftur sem hamlar gegn hreyfingu hlutar
B) hefur lítil áhrif í okkar daglega lífi
C) er aldrei gagnlegur
D) er kraftur sem vinnur með hreyfingu hlutar
  • 4. Ef þú stæðir á tunglinu
A) væri þyngd þín minni en á jörðinni, en massinn væri hinn sami
B) væri massi þinn meiri en á jörðinni, en þyngdin væri hin sama
C) væri massi þinn minni en á jörðinni, en þyngdin væri hin sama
D) væri massi þinn og þyngd hin sömu og á jörðinni
  • 5. Vökvaknúin tæki
A) geta margfaldað kraft
B) allir svarmöguleikarnir eru réttir
C) ganga fyrir rafmagni, bensíni eða olíu
D) ganga fyrir handafli
  • 6. Á jörðinni er þyngd hlutar sem hefur massann 10 kg
A) 1000 N
B) 100 N
C) 10 kg
D) 10 N
  • 7. Múrsteinn sem dreginn er eftir sandpappír leiðir vel í ljós
A) flotkraft
B) straummótstöðu
C) veltunúning
D) renninúning
  • 8. Loftmótstaða er dæmi um
A) renninúning
B) veltunúning
C) straummótstöðu
D) flotkraft
  • 9. Hver er þrýstingurinn ef 650 N kraftur verkar á flöt sem er 13 cm2 ?
A) 663 N/cm2
B) 50 N/cm2
C) 0,02 N/cm2
D) 8450 N/cm2
  • 10. Hlutur flýtur í vökva þegar hluturinn
A) ryður frá sér vökva sem er þyngri en hluturinn sjálfur eða jafn þungur honum
B) er þyngri í sér en vökvinn
C) ryður frá sér vökva sem er léttari en hluturinn sjálfur
D) hefur meiri þéttleika en vökvinn
  • 11. Krafturinn sem þrýstir vængjum flugvélar upp nefnist
A) knýr
B) lyftikraftur
C) viðnám
D) þyngd
  • 12. Gormvog mælir afl.
A) Satt
B) Ósatt
  • 13. Þyngd er mælikvarði á kraft sem verkar á hlut og stafar af þyngdarkrafti jarðar.
A) Ósatt
B) Satt
  • 14. Smurefni eru notuð til þess að auka núning.
A) Satt
B) Ósatt
  • 15. Lögmál Arkimedesar felur í sér að þrýstingur í straumefni á hreyfingu er minni en þrýstingur í kyrru straumefni umhverfis.
A) Satt
B) Ósatt
  • 16. Massi er ekki hið sama og þyngd.
A) Ósatt
B) Satt
  • 17. Hver hlið á járnkubbi er 2 cm. Hver er massi hans ef eðlismassi járns er 7,86 g/cm3 ?
  • 18. Reiknaðu þrýstinginn ef 800 N kraftur verkar á flöt sem er 25 cm2.
  • 19. Hvort hefur meira rúmmál, 3 g af gulli eða 3 g af silfri? Rökstyðjið.
  • 20. Finnið stærð og stefnu lokakraftsins á þessari mynd.
Students who took this test also took :

Created with That Quiz — the site for test creation and grading in math and other subjects.