- 1. Eining sem notuð er fyrir kraft er:
A) njúton B) metri C) vatt D) júl
- 2. Sá kraftur jarðar sem verkar á hlut kallast:
A) núningur B) þyngd C) þrýstingur D) eðlismassi
- 3. Sá kraftur sem hamlar alltaf gegn hreyfingu hlutar kallast:
A) lyftikraftur B) flotkraftur C) núningur D) knýr
- 4. Kraftur í straumefnum sem ýtir hlut upp nefnist:
A) flotkraftur B) knýr C) viðnám D) þyngdarkraftur
- 5. Samkvæmt lögmáli Arkimedesar flýtur hlutur í vökva ef:
A) eðlismassi hlutarins er meiri en eðlismassi vökvans. B) vökvinn hreyfist hraðar en hluturinn. C) eðlismassi hlutarins er minni en eðlismassi vökvans. D) vökvinn er í íláti.
- 6. Kraftur við flugvélavæng sem verkar upp og heldur flugvélinni á lofti kallast:
A) knýr B) lyftikraftur C) núningur D) viðnám
- 7. Mótstaðan sem loft veitir gegn hreyfingu flugvélar fram á við nefnist:
A) nýtni B) viðnám C) flotkraftur D) knýr
- 8. Mælikvarði á það hversu hratt vinna er unnin nefnist:
A) afl B) kraftahlutfall C) orka D) nýtni
- 9. Tveir kraftar koma alltaf við sögu þegar vél er notuð. Þeir eru:
A) inntakskraftur og skilakraftur B) inntakskraftur og vogarkraftur C) skilakraftur og afl D) núningskraftur og skilakraftur
- 10. Engin vél vinnur með 100% nýtni vegna áhrifa:
A) kraftahlutfalla B) smurefna C) flotkrafts D) núnings
- 11. Það sem ýtir á hlut eða togar í hann svo að hreyfing hans breytist nefnist:
A) núningur B) vinna C) kraftur
- 12. Ef tveir menn beita 10 nútjona krafti hvor um sig í sömu stefnu verður lokakrafturinn:
A) 100 njúton B) 0 njúton C) 20 nútjon
- 13. Ef ekki kæmi til _________ hlyti hreyfing hlutar að haldast óbreytt.
A) krafts B) afls C) núnings
- 14. Kraftur sem verkar upp á við á hlut í straumefni nefnist:
A) Þrýstingur B) Flotkraftur C) Lyftikraftur D) Þyngdarkraftur
- 15. Lögmálið sem felur í sér að þrýstingur í straumefni á hreyfingu sé minni en í straumefni sem hreyfist ekki kallast lögmál:
A) Arkimedesar B) Bernoullis C) Einsteins D) Newtons
- 16. Í SI-kerfinu er vinna mæld í njútonmetrum eða:
A) Voltum B) Njútonum C) Júlum D) Wöttum
- 17. Eining SI-kerfisins fyrir afl er:
A) Njúton B) Vatt C) Volt D) Júl
- 18. Hugtak sem segir til um hversu oft vél margfaldar inntakskraftinn kallast:
A) Vinnuhlutfall B) Kraftahlutfall C) Nýtnishlutfall
- 19. Fasti punkturinn sem vogarstöng snýst um kallast:
A) Hjól B) Vog C) Vogarás D) Stýri
- 20. Beinn, hallandi flötur er dæmi um einfalda vél sem nefnist:
A) Taflborð B) Skáborð C) Skákborð
- 21. Gormvog er áhald sem oft er notað til þess að mæla kraft.
A) Rangt B) Rétt
- 22. Hlutur sem er með massann 20 kg er á jörðu er 196 njúton á þyngd.
A) Rétt B) Rangt
- 23. Krafturinn sem hamlar gegn hreyfingu hlutar eftir straumefni eða í gegnum það kallast veltnúningur.
A) Rétt B) Rangt
- 24. Olía, vax, smurfeiti og önnur hál og sleip efni kallast smurefni.
A) Rangt B) Rétt
- 25. Kraftur á tiltekna flatarmálseiningu í straumefni kallast flotkraftur.
A) Rangt B) Rétt
- 26. Hlutur flýtur ef hann ryður frá sér minni vökva en sem nemur eigin þyngd hlutarins.
A) Rétt B) Rangt
- 27. Timbur flýtur í vatni vegna þess að eðlismassi þess er meiri en 1 gramm á rúmsentimeter.
A) Rétt B) Rangt
- 28. Tæki sem flytja krafta í vökvum og margfaldað þá kallast vökvaknúin tæki.
A) Rétt B) Rangt
- 29. Forsenda þess að venjuleg flugvél fljúgi er að loftið yfir vængjum hennar hreyfist hægar en loftið við neðra borð vængjanna.
A) Rétt B) Rangt
- 30. Vélar eru tæki sem auðvelda vinnu vegna þess að þær margfalda orku.
A) Rétt B) Rangt
- 31. Á jörðinni er þyngd hlutar sem hefur massann 10 kg:
A) 10 kg B) 98 N C) 980 N D) 10 N
- 32. Múrsteinn sem dreginn er eftir sandpappír leiðir vel í ljós:
A) veltinúning B) straummótstöðu C) renninúning D) flotkraft
- 33. Loftmótstaða er dæmi um
A) straummótstöðu B) renninúning C) ekkert af þessu D) veltinúning
- 34. Hlutur flýtur í vökva þegar hluturinn:
A) er þyngri í sér en vökvinn B) ryður frá sér vökva sem er þyngri en hluturinn sjálfur eða jafnþungur honum C) hefur meiri þéttleika en vökvinn D) ryður frá sér vökva sem er léttari en hluturinn sjálfur
- 35. Eðlismassi hlutar sem er að rúmmáli 2 cm3 og hefur massann 8 g er:
A) 0,25 g/cm3 B) 4 g/cm3 C) 6 g/cm3 D) 4 cm3/g
- 36. Krafturinn sem þrýstir vængjum flugvélar upp nefnist :
A) viðnám B) knýr C) lyftikraftur D) þyngd
- 37. Hve mikil vinna er framkvæmd þegar kraftur sem nemur 2 N færir hlut um 6 m?
A) 3 vött B) 3 J C) 12 J D) 12 vött
- 38. Hve mikið rafafl er notað í ljósaperu sem tekur til sín 3000J/mínútu?
A) 600 vött B) 3000 vött C) 50 vött D) 500 vött
- 39. Kraftur sem notandi vélar leggur til hennar nefnist:
A) skilakraftur B) úttakskraftur C) úttaksvinna D) inntakskraftur
- 40. Skrúfjárn er dæmi um:
A) hjól og ás B) fleyg C) skrúfu D) trissu
|